Gufunesbær Hvergiland Sumar
 
8.7.2010

Fimmtudagsfiðringur

Jæja þá er kominn fimmtudagur og erum við á leiðinni í Fjölskyldu og Húsdýragarðinn en þar er staðsett vísindatjald sem krakkarnir sækjast mikið í.
Í gær fórum við í sund í Kópavogi og skemmtum við okkur alveg gríðarlega vel!
Myndasíðan hjá okkur liggur niðri um stundarsakir en við vonum að hægt sé að skella inn myndum von bráðar
6.7.2010

Vísindavika byrjuð í Hvergilandi (Gleðiland)

Já þá er Vísindavikan hafin og stendur hún frá 5. júlí til 9. júlí.
Dagskrána má finna fyrir vikuna hér til hliðar undir tenglinum Upplýsingar til foreldra og neðst er svo skráin Vísindi 5. júlí - 9. júlí.
[ MEIRA ]
29.6.2010

Hreyfing 28.júní - 2.júlí

Vikan 28.júní-2.júlí er vika hreyfingar hjá okkur í Gleðilandi (Hvergiland og Vík).
Mánudagar eru heimadagar og eru börnin þá í úti- og innileikjum.
Í dag þriðjudag fórum við í keilu og börnunum til mikillar ánægju. Við komum við á Gubbu-róló en hann dregur nafn sitt af rólu einni sem er á róluvellinum. Börnin prófuðu róluna en sem betur fer varð engum meint af.
Við ætlum í sundlaugina á Álftanesi á morgun. 
  Í dag er 29. júlí 2010
<júlí 2010>
mþmffls
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Mánaðaryfirlit Vikuyfirlit
Flokkayfirlit Leit
Á DÖFINNI
Engir viðburðir eru skráðir á næstunni