Á döfinni
31.01.2012 - Púgyn, kl. 19.30-22.00
Brúðuleikhús
Þriðjudagur - Vík 19.30-22.00
BRÚÐULEIKHÚS
Já lömbin mín ef þið hélduð að Te-kynning Marra hefði verið grilluð þá segi ég bara eins og í laginu "You ain't seen nothing yet" því kvöldið í kvöld mun marka tímamót í sögu brúðuleikhúsa. Það kannast allir við Brúðubílinn gamla góða en hann er ekkert miðað við "The Magnificent Pippet Peppet Puppet Show". "TMPPPS" sem var að sjálfsögðu skrifað af Jóhannesi Bjarka og auðvita leikstýrt af Brynjari Barkarsyni a.k.a "the puppet master" en þeir sjá báðir um að ljá brúðunum líf!
Leiksýningin er í senn dramatísk ástarsaga með örlitlu Si-Fi ívafi og auðvita með spennu sem minnir mest á mynd með Chuck Norris!
Þannig ekki láta þig vanta á "The Magnificent Pippet Peppet Puppet Show"
Svo er opið hús fyrir þá sem hafa ekki gaman af brúðuleikhúsum... (sem ég veit ekki hverjir það gætu verið)