Sundlaugapartý og/eða videomaraþon!
22.02.2012
Já krakkar mínir það er heldur betur veisla! Þið getið valið um tvo frábæra viðburði á morgun eða einfaldlega tekið þá í báðum!
Keldurskóli - Vík 17.00 - 22.00
VIDEOMARAÞON!
Oooh. Hvað er betra en hafa það bara kósý og glápa á videomyndir, borða pizzu, þamba gos og gúffa nammi?... ótrúlega margt! en það er samt drullu kósý og við ætlum að gera nákvæmlega það! Horfa á video, panta pizzu osfrv. Ef þig langar að fá hálfa 15"pizzu, gos og sjeik þá kemur þú með 1000 kr. og færð allan pakkann. Hvaða myndir ætlum við að horfa á? Við byrjum á góðum grínsmelli kl. 17.00 og eftir hana þá pöntum við pizzu og svo er það undir ykkur komið að kjósa um mynd en við verðum með nokkrar fyrir ykkur til að velja um!
Sundlaug Grafarvogs 19.00-21.00
SUNLAUGAPARTÝ!
Þetta er fyrir alla krakka í Grafarvogi og það kostar ekkert inn. Það er hann Gunni Önd sem verður frá okkur og tekur á móti ykkur en þarna verður rosaleg stemming. Þarna verður músík og fullt af krökkum! Þetta getur ekki klikkað!