Allir í Ævintýraland
27.01.2012
Sæl og blessuð foreldrar og forráðamenn.
Nú hafa vonandi flestir tekið eftir því að nýr verkefnastjóri er kominn til starfa í Ævintýralandi og er það undirritaður sjálfur Hjörtur Harðarson félagsfræðingur að mennt. Nú er ég búinn að vera tæpan mánuð í starfi og það er sko voða gaman hjá okkur í Ævintýralandi. Fyrir þá sem vilja hafa samband við mig þá skoða ég tölvupóstinn daglega til ca 12:00 svo er ég með GSM símann á mér allan daginn og er í vinnunni til svona ca 16:30. Það er svo alltaf hægt að hringja í borðsímann í Ævintýralandi. Ég ætla að vona að við getum skemmt öllum krökkunum ykkar þegar þau eru hjá okkur en ef eitthvað vantar uppá þá ekki hika við að hafa samband því erum alltaf opin fyrir því að aðstoða alla og að hafa gott samstarf ef ykkur vantar eitthvað.
Svo vil ég minna ykkur á að 6. febrúar verður opnað fyrir skráningu fyrir börnin ykkar fyrir næsta ár og vonum við að sjá sem flesta. Það sem við í Ævintýralandi erum að bæta okkur í er m.a. að auka valið fyrir 3 og 4 bekk því þau þurfa á því að halda og að það verði vinsælt að vera alltaf áfram í Ævintýralandi eftir 1. bekk þannig að börnin uppgötvi (aðgangur aukist) eitthvað nýtt með hverju ári sem líður.
Kær kveðja
Hjörtur Harðarson