Baksturssmiðja - uppskriftir
10.11.2011
Á þriðjudögum hafa börnin val um að fara í baksturssmiðja og hér birtast uppskriftir af því sem bakað er.
Möffins m/súkkulaðibitum
100 gr smjör
2 dl sykur
2 stk egg
6 dl hveiti
4 tsk lyftiduft
2 dl mjólk
2 tsk vanilludropar
200 gr suðusúkkulaði (saxað niður)
Smjörið brætt og súkkulaðið látið útí í endann varlega.
Bakað við 200° í 15-20 mínútur
Kornflexkökur
50 gr smjör
150 gr suðusúkkulaði
5 msk síróp
4 bollar kornflex (eða rice krispies)
Muffins form
Bræða allt í potti , kornflexið látið útí seinast og varlega blandað við.
Sett í form og inní frysti/ísskáp í 15 mínútur.
1 bolli = 2,2 dl
Fléttubrauð
1 dl heitt vatn
1 ½ dl mjólk
2 ½ tsk þurrger
5 dl hveiti
1 dl klíð ( má sleppa og nota hveiti í staðinn )
2 ½ msk matarolía
¼ tsk salt
1 tsk sykur
Birki eða sesamfræ ofan á.
Aðferð
1. Blandið saman mjólk og vatn
2. Leysið gerið upp í vökvanum
3. Setjið restina útí og hnoðið deigið á borði
4. Skiptið deiginu í 3 hluta, mótið þá í lengjur og fléttið saman
5. Látið brauðið á bökunarpappír, penslið með mjólk og látið birki ofaná
6. Látið brauðið lyfta sér í 20. Mínútur
7. Bakið brauðin í 20. Mínútur við 200°-220°
Skúffukaka
250 gr sykur
2 stk egg
2 ¼ bolli hveiti
½ bolli kakó
1 tsk matarsódi
1 tsk lyftiduft
1 tsk salt
100 gr brætt smjörlíki
1 tsk vanilludropar
1/3 bolli heitt vatn
1 bolli súrmjólk
Aðferð
1. Þeyta saman egg og sykur þar til það er ljóst og létt
2. Blanda saman þurrefnunum
3. Setja útí eggjahræruna vanilludropa og súrmjólk
4. Blanda þurrefnunum varlega saman við eggjahræruna
5. Setja heita vatnið síðast útí
Krem
150 gr flórsykur
1 egg
100 gr smjör
3 msk kakó
1 tsk vanilludropar
Flórsykurinn og egg hrært saman, bræða smjör og setja allt útí.
Bollur (Snúðar, kringlur og horn)
½ dl heitt vatn + ½ dl mjólk
2 tsk ger
1 tsk sykur
¼ tsk salt
1 msk matarolía
2 ½ dl hveiti
Efni sett í skál í þessari röð.
Hrært vel. Látið lyfta sér í skálinni í heitu vatni í 5 mínútur.
Hnoðað á borði. Deigið á að vera frekar lint, þó þannig að það festist ekki við borð og hendur.
Mótað í snúða, kringlur, bollur eða horn. Látið lyfta sér á plötunni á volgum stað í 15 mínútur.
Ef baka á snúða úr deiginu er það flatt út og smurt með smjöri, smjörlíki eða mjólk og kanel-sykri stráð yfir, það vafið saman og skorið í ca. 12 snúða.
Í deigið má setja fræ, t.d. kúmen, sesamfræ, valmúafræ(birki) eða mulin sólblómafræ. Úr deiginu fást ca. 8 kringlur, horn eða bollur.
Snúðar bakaðir við 200°C í 12-15 mínútur.
Kringlur, horn og bollur bakað við 225°C í 12 mínútur.
Munið að ofnar eru misjafnir. Þess vegna er aldrei hægt að treysta eingöngu á uppgefinn baksturstíma. Fylgist vel með ofninum!
Súkkulaðibitasmákökur
1 bolli + 2msk hveiti
½ tsk matarsódi
½ tsk salt
½ bolli lint smjör
6 msk sykur
6 msk púðursykur
½ tsk vanillusykur
2 msk kakó
1 stk egg
1 bolli suðusúkkulaðibitar
½ bolli saxaðar hnetur (má sleppa)
1 bolli = 2,2 dl eða 220 gr
Smjör hrært með sykrinum (hvíta), svo egginu bætt útí.
Loks er þurrefnunum bætt útí ! Ef deigið er mjög þurrt má láta smá kalt vatn útí.
Látið á bökunarpappír með tsk og bakað í 8-10 mín við 180° heitum ofn.