Fréttir og tilkynningar
Sumarfrístund | 23.04.2012
Mánudaginn 23.apríl hefst skráning inn á Rafræn Reykjavík fyrir sumarfrístund. Sumarfrístund er frá 11. júní til 13. júlí. Opnum svo aftur 7. ágúst - 17. ágúst. Skráð er vika í senn og grunngjaldið er 7.510 kr. Grunngjaldið miðast við frá 9:00 - 16:00 Sumarvefur ÍTR opnar einnig mánudaginn 23.apríl ...
Gleðilega páska | 04.04.2012
Erum búinn að hafa það gott í Kastala yfir löngu dagana
Skemmtilegur Öskudagur. | 28.02.2012
22. febrúar sl. var starfsdagur kennara í Húsaskóla, þann dag opnaði frístundaheimilið kl. 8 að morgni, fljótlega byrtust hinar ímsu furðuverur. Allir kátir og hressir í skemmtilegum búningum, hugmyndaflugið réði ríkjum.
Þorramatur í Kastala | 02.02.2012
Föstudaginn 22 janúar s.l. var vísir að þorrablóti í Kastala. Í síðdegishressingunni buðum við upp á fjölbreittan íslenskan þorramat.
T.d. súran hval, hrútspunga, hákarl, harðfisk, svína- og sviðasultu, blóðmör og lifrapilsu.
Nýtt ár. | 19.01.2012
Nú í upphafi árs langar okkur starfsfólki Kastala/Turnsins að óska ykkur öllum gleðilegs árs og þakka góða samvinnu á árinu sem var að líða.
Jóla-& áramótakveðja | 22.12.2011
Við í Kastala og Turninum viljum óska börnunum okkar og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og megi jólahátíðin færa ykkur frið og ró. Einnig viljum við þakka samstarfið á árinu sem er að líða og vonum við að nýja árið verði ánægjulegt og viðburðaríkt.
Jólaskemmtun og jólaskráning | 19.12.2011
Í dag verður jólaskemmtun í Kastala! Þá ætlum við að bjóða foreldrum og ættingjum að heilsa upp á okkur og bragða sér á heitu súkkulaði og handmáluðum piparkökum. Skemmtunin er frá 17.00-18.00! Allir velkomnir. Jólaskráningin er nú öll komin í hús og markmiðið er að vera sem mest heima í Kastala og ...
Góðgerðavika Gufunesbæjar | 28.11.2011
Hin árlega Góðgerðavika verður haldin dagana 28. nóvember til 2. desember þar sem börn og unglingar í Grafarvogi styrkja góð málefni. Kastali tekur að sjálfsögðu þátt í vikunni og á jólamarkaðnum verða seldar afurðir frá samstarfi Nagyn og Kastala/Turnsins sem rennur til Mæðrastyrksnefndar. (meira)
Kastalalíf | 16.11.2011
Í gær var langur dagur og skemmtu börnin sér mjög vel í leik og útiveru í Kastala/Turninum. Næsta miðvikudag, 23. nóvember er starfsdagur í Kastala og þá er lokað og ekki tekið á móti neinum börnum. Klúbbarnir okkar fara vel af stað (meira)
Nýtt Skóla og frístundasvið | 02.11.2011
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í júní 2011 að sameina menntasvið. leikskólasvið og tómstundaskrifstofu íþrótta- og tómstundasviðs í nýtt svið, sem fékk nafnið skóla- og frístundasvið (skammstafað SFS)...