Fréttir og tilkynningar
Skráning á VÖKUNÓTT BORGYN | 20.02.2012
Vökunóttin SÍVINSÆLA verður haldin föstudaginn 24. febrúar frá kl. 21.00 og stendur til kl. 07.00 á laugardagsmorgninum. Þátttökugjaldið er 2000 krónur en innifalið í verðinu er afþreying í 10 klukkustundir, hálf pizza og 1/2 lítri af gosi. Skráðu þig ef þú vilt vera með.
Jóna Kristín sigurvegari "Það er algjör vitleysa að reykja!" | 17.02.2012
Á safnanótt Þjóðminasafns Íslands 10. febrúar sl. var tilkynnt um úrslit í samkeppninni „Það er algjör vitleysa að reykja!“. Samkeppnin var haldin í tilefni af sýningunni „Þetta er allt sama tóbakið!“ sem stendur í Þjóðminjasafni Íslands. Að samkeppninni stóðu auk Þjóðminjasafnsins, Krabbameinsfélagið, Embætti landlæknis og Prentsmiðjan Oddi. Meira...
Minni-Borgyn: SUSHIGERÐ skráning | 16.02.2012
Minni-Borgyn býður upp á sérstaka Sushigerðar-smiðju þriðjudaginn 13. mars milli kl. 15.00 og 17.00. Þátttakendur búa til maki-rúllur undir leiðsögn Erlu Óskar. Að lokum verður hægt að smakka afraksturinn eða taka með heim. Kostar 500 krónur að taka þátt. 10 komast að, þátttakendur fá staðfestingu á þátttökurétti með sms-i degi fyrir smiðjuna eða svo. (Fyrstu skráir, fyrstur kemst inn).
Minni-Borgyn: SKEMMTIGARÐURINN skráning | 16.02.2012
23. febrúar fimmtudagur kl. 16.00 – 19.30: Skemmtigarðurinn Smáralind. Hoppum upp í strætó og skellum okkur í leikjapartý í Skemmtigarðinum Smáralind. Pakkinn kostar 2000 krónur en innifalið í verðinu er inneign í tækin upp á 1500 krónur, tvær pizzusneiðar og gos/djús auk strætóferðar fram og til baka. Starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar mun vera með krökkunum allan tímann.
Bara einhver smiðja á morgun fimmtudag | 15.02.2012
Já hæ... við gátum ekki ákveðið hvaða smiðju við ættum að hafa á morgun svo við ætlum bara að bjóða upp á einhverja smiðju enda er líka smiðjuvika svo við verðum að hafa einhverja smiðju því annars erum við að brjóta dagskrána og það má ekki mættu bara á morgun í Borgyn og sjáðu hvaða smiðja verður í boði það skiptir nú ekki máli hvað er að gerast í Borgyn það er alltaf svo agalega skemmtilegt punktur stór stafur minnum líka á að það vantar ennþá 70 stig upp á sleepover átakið punktur