Fréttir og tilkynningar

Framboð til unglingaráðs Borgyn/Engyn 2012-2013 | 13.05.2012

Nú eru hafnar kosningavikur til unglingaráðs Borgyn og Engyn fyrir skólaárið 2012-2013. En eins og allir vita verða þessar tvær félagsmiðstöðvar sameinaðar á næsta skólaári. Borgyn auglýsir eftir framboðum frá 7., 8. og 9. bekk. ALLIR eru hvattir til að bjóða sig fram. Kosið verður í lok mánaðarins. Frekar upplýsingar síðar. Bjóddu þig fram hér...

KVEÐJUPARTÝ BORGYN | 02.05.2012

Hæbb. Á föstudaginn ætlar félagsmiðstöðin Borgyn að kveðja unglinga félagsmiðstöðvarinnar Borgyn með formlegum hætti. Nei, nei, nei ekki misskilja við erum ekki að hætta alveg strax, heldur ætlum að halda kveðjupartýið bara svona snemma. En eins og flestir vita mun Borgyn hætta eftir þetta skólaár og ný félagsmiðstöð tekur við. Mætum öll á þennan sorglega en skemmtilega viðburð.

Dagskrá Minni-Borgyn tilbúin | 18.04.2012

Sæl. Miðstigsráð hefur útbúið dagskrá Minni-Borgyn út vorönnina. Haldinn var metnaðarfullur fundur með pizzum og læti og afraksturinn var þessi líka glæsilega dagskrá. Dagskrána má nálgast í þessari frétt en einnig er borði á forsíðunni hægra megin sem á stendur Dagskrá Minni-Borgyn og þar er dagskrána að finna.

Spunasmiðja í Borgyn í kvöld | 17.04.2012

Heil og sæl. Engar listahátíðarsmiðjur í kvöld vegna dræmrar skráningar. Þess í stað verður boðið upp á glænýja og frábæra SPUNASPORTSMIÐJU í Borgyn. Smiðjan hefst kl. 20.00 og er nóg að mæta rétt fyrir til að skrá sig í hana. Fyrir hina verður opið hús og eitthvað hressandi í gangi. Síja.

Skráning á Listahátíðina lokast kl. 13.00 | 16.04.2012

Listavika Gufunesbæjar í fullum gangi. Á morgun þriðjudag verður síðasti viðburðurinn þar sem í boði verða eftirfarandi smiðjur í Rimaskóla (en starfsmenn allra félagsmiðstöðvanna í Grafarvogi sjá um eina smiðju hver): Á morgun í Rima (LISTAHÁTÍÐIN - taktu þátt og skráðu þig í smiðju): - Tie dye bolagerð - Spunasport - Videogerð - Rappsmiðja - Listin að lifa - Röklistarsmiðja - Hönnunarsmiðja ATH SKRÁNINGARFRESTUR RENNUR ÚT KL. 13.00 Á MORGUN. LESA UM SMIÐJURNAR OG SKRÁ SIG HÉR.


Félagsmiðstöðvar


Bjóða sig fram í unglingaráð Borgyn Engyn hér....minni-borgyn dagskráDagskra banner 2012 maíMyndir úr starfi félagsmiðstöðvarinnar BorgynHeimasíða Borgaskóla




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit