Fréttir og tilkynningar

Maí mánuður | 09.05.2012

Nóg að gera það sem er af maí. Veðrið hefur ekki skemmt fyrir og hafa börnin verið mikið úti að leika. Við höfum haft margar smiðjur úti, svo sem hollíhú, fótboltamót, krítar og leika í sandkassanum. Við höldum áfram að leika okkur úti og er það góður undirbúningur fyrir sumarið. Á mánudaginn 14. maí er svo langur dagur í Tígrisbæ þar sem eitthvað skemmtilegt verður gert.

Skil á milli vetrarstarfs og sumarstarfs | 09.05.2012

4. júní er venjulegur dagur í Tígrisbæ. 5. og 6. júní verða langir dagar í Tígrisbæ - skráningarblað sent út 25. maí. 7. og 8. júní er lokað í Tígrisbæ (7. júní er frágangsdagur eins og skólaslitsdagurinn er oftast og 8. júní er undirbúningsdagur fyrir sumarið) 11. júní hefst svo fyrsta vika í sumarfrístund og er skráning í fullum gangi inn á Rafræn Reykjavík. Nú fer hver að vera síðastur að skrá á fyrstu vikurnar í júní. Þær eru að fyllast.

Fríkað fjör á mánudaginn | 26.04.2012

Mánudaginn 30. apríl er fríkað fjör í Tígrisbæ í tilfefni þess að það sé síðasti dagur mánaðarins. Fríkað fjör að þessu sinni verður DÓTADAGUR! Það mega allir koma með eitt dót að heiman og reynum að hafa leikfangavopn og tölvuleiki í lágmarki.

SUMARFRÍSTUND | 20.04.2012

Mánudaginn 23.apríl hefst skráning inn á Rafræn Reykjavík fyrir sumarfrístund. Sumarfrístund er frá 11. júní til 13. júlí. Opnum svo aftur 7. ágúst - 17. ágúst. Skráð er vika í senn og grunngjaldið er 7.510 kr. Grunngjaldið miðast við frá 9:00 - 16:00 Sumarvefur ÍTR opnar einnig mánudaginn 23.apríl þar sem má finna allar upplýsingar. Hvetjum alla til að skoða þetta og sækja um :)

Sumardagurinn fyrsti | 16.04.2012

Fimmtudaginn 19. apríl er sumardagurinn fyrsti og þá er lokað í Tígrisbæ. Það verður sumarhátíð í Rimaskóla þann dag og hægt er að nálgast dagskránna fyrir daginn hérna til hliðar undir dagskrá.

Páskaleyfið búið | 12.04.2012

Börnin skemmtu sér vel í páskaleyfinu í Tígrisbæ og vorum við með dagskrá fyrir dagana okkar. Við gerðum margt skemmtilegt og þar má nefna, bakstur, bingó, klifur, gönguferðir og skautar. Hægt að sjá skemmtilegar myndir hér til hliðar.


Frístundaheimili


SumarvefurRafræn ReykjavíkSkóla og frístundasvið SímanúmerGamla heimasíðan




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit