Fréttir og tilkynningar

Náttfatabúningadagur í Hvergilandi | 03.02.2012

Í dag ákvað starfandi barnaráð að hafa náttfatabúningadag og buðu uppá Margaritu pizzu, ostapopp og djús. Eitt barnið kom með mynd að heiman sem boðið er uppá að horfa í skála 1, en í skála 2 er boðið uppá spil og perlur og í skála 3 mega öll börn vera í dag, enda er mikið tækifæri á að vera í hlutverkaleik þegar maður er í flottum búning eða náttfötum.

Langur dagur 27.janúar | 17.01.2012

Föstudaginn 27.janúar verðu foreldarviðtalsdagur í Vættaskóla, Borgir og þá verður opið í Hvergilandi frá kl. 8 - 17:15. Í dag fór tölvupóstur heim til foreldra með skráningarblaði. Búið er að setja inn nýjar myndir :)

GLEÐILEGT NÝTT ÁR :) | 10.01.2012

Og takk fyrir það gamla :) Við erum nú farin af stað með starfið í Hvergilandi af fullum krafti þar sem frá var horfið í desember. Við höfum í hyggju að breyta örlítið dagskránni, þar sem við ætlum að bjóða upp á fleiri tilboð fyrir 2., 3. og 4. bekk ásamt fljölbreyttri dagskrá fyrir 1.bekk. Barnaráðið fer af stað bráðlega og nú fara nöfn barnanna í 1.bekk einnig í pottinn :) Barnafundir verða áfram hjá okkur á mánudögum og þá förum við m.a. yfir óskilamuni. Það er því mikilvægt að þið foreldrar séuð dugleg að merkja föt barnanna!! Muna svo að koma klædd eftir veðri og endilega skella auka sokkum í töskuna fyrir Hvergiland.


Á döfinni


Engir viðburðir fundust.

Frístundaheimili


Dagatal 2011 - 2012Skóla og frístundasvið




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit