Fréttir og tilkynningar

Krakkaráð 27.01.12

27.01.2012

Krakkaráðið skipar stóran sess í starfi Brosbæjar og er það góð leið fyrir börnin til að hafa áhrif á starfið. Í dag sátu börn úr 1. og 2. bekk í ráðinu. Börnin fá að ákveða hvað er í hressingunni tvo daga í viku, hvaða leikur er í ávaxtastundinni tvo daga í viku, hvaða ávextir (eða annað gotterí) er boðið uppá þrjá daga í viku og hvaða verðlaun við vinnum okkur inn.

 

Ákvarðanir ráðsins voru;

1. Á mánudaginn verður mangó í ávaxtastundinni.

2. Á þriðjudaginn næsta verður boðið uppá ristað brauð og kakó í síðdegishressingu og svo verður farið í gulrótarleik í ávaxtastundinni.

3. Á miðvikudaginn verða ýmsar tegundir ávaxta í ávaxtastundinni

4. Á fimmtudaginn verður boðið uppá rúgbrauð, flatkökur og venjulegt brauð í hressingunni og svo verður farið í töluleik í ávaxtastundinni.

5. Á föstudaginn verður kex í ávaxtastundinni.

6. Næstu verðlaun verða þau að börnin fá að horfa á einhverja skemmtilega mynd og fá smá popp.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit