Fréttir og tilkynningar

Forgangslisti á SamFestinginn

26.01.2012

Árshátíð félagsmiðstöðvanna á Íslandi verður haldin í Laugardalshöll 2. og 3. mars 2012. Hátíðin er þekkt undir nafninu Samfés-hátíðin en nú heitir hátíðin SAMFESTINGURINN. Vegna þess að „aðeins“ komast 4.500 unglingar á hátíðina og hátíðin er fyrir alla unglinga í 8., 9. og 10. bekk af öll Íslandi fær hver og ein félagsmiðstöð takmarkaða miða....

Félagsmiðstöðin Borgyn fær úthlutað 35 miða. Þar sem hátíðin er, líkt og fyrr segir, árshátíð félagsmiðstöðvanna eru þeir unglingar sem eru hvað virkastir í félagsmiðstöðinni forgang á hátíðina. Starfsfólk Borgyn mun því búa til forgangslista en þeir unglingar sem eru á honum hafa tryggan miða á SamFestinginn hafi þeir áhuga á að fjárfesta í miða þegar miðasala fer af stað.

Unglingarnir geta þó haft áhrif á þennan forgangslista með því að mæta vel í Borgyn næstu vikurnar. Á hverjum viðburði verður nefnilega í gangi mætingarlisti þar sem unglingarnir merkja við sig um leið og þeir mæta í Borgyn. Endanlegur forgangslisti ræðst því af mætingu unglinganna í Borgyn næstu vikurnar ásamt uppröðun starfsfólks á listanum.

 




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit