Fréttir og tilkynningar

Skráning í skíðaferð og Söngyn

26.01.2012

Nú er orðið ljóst að Fjörgyn fer í skíðferð til Akureyrar helgina 16. - 18.  mars. Við ætlum að fara með Græðgyn (félagsmiðstöðinni í Hamraskóla) í ferðina sem gerir hana ennþá skemmtilegri. Skráning í ferðina verður mánudaginn 30. janúar í hádeginu í skólanum og þriðjudaginn 31. janúar á opnu húsi. Þess ber að geta að 9. og 10. bekkingar hafa forgang í ferðina en við hvetjum 8. bekkinga til þess að skrá sig. Miðað er við að 30 krakkar komist með frá Fjörgyn og ef talan fer vel umfram það þá verður dregið um hverjir komast norður með okkur.

Einnig má nefna að Söngyn verður haldin fimmtudagskvöldið 26. janúar en þar koma fram galvaskir unglingar úr Grafarvogi þar sem keppt verður um tvö laus sæti á söngvakeppni Samfestingsins (sem er hið nýja heiti yfir Samfés hátíðina). Keppendur frá Fjörgyn eru þau Marko, Árni og Andrea úr 8. bekk og gaman verður að fylgjast með þeim. Keppnin hefst kl. 19:00 og keppnin er haldin í Rimaskóla.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit