Fréttir og tilkynningar
Náttfatanótt í Sigyn 12. nóvember | 11.11.2010
Föstudaginn 12. nóvember verður hin árlega náttfatanótt í Sigyn. Við ætlum að eiga góðar stundir saman í félagsmiðstöðinni og gera fullt af skemmtilegum hlutum saman. Áður en náttfatanóttin brestur á er gott að vita eftirfarandi hluti...
Tölvuleikja- og leikjatryllingur | 11.11.2010
Í kvöld verður opið milli 19:30-22:00 fyrir 8. - 10.bekkinn og það verður mikið um dýrðir. Þá verður boðið upp á tölvuleikja- og leikjatrylling ásamt því að tekið verður á móti skráningu í 9. og 10.bekkjaróvissuferðina. Fjölmennum!
Fyrsti snjórinn í vetur :) | 01.01.1900
Við skemmtum okkur konunglega í síðustu viku nánar tiltekið þann 4. nóvember. Það var snjór og alveg kærkominn bæði fyrir starfsfólk og börn. Allir komu rjóðir í kinnum inn í ávaxtahressinguna kl. 16:00.
2. bekkur í Kastala | 10.11.2010
Nú hefur 2. bekkur aðeins fært sig inn í skóla með því sniði að leyfa stelpum og strákum að njóta sín betur hjá okkur. Strákaklúbburinn er alla mánudaga eftir kaffi og fá strákarnir svoldið að velja hvað þeir gera. Skotbolti er afar vinsæll en einnig hafa þeir farið í ýmsa leiki...
Opið "lista" hús á morgun | 10.11.2010
Hvað er það eiginlega? Jú, þá ætlum við að gera það sem listamenn gera. Og það er? Að sjálfsögðu búa til listaverk á striga og bara allskonar svona....
Fjölskyldudagur í vetrarfríi. | 09.11.2010
Í vertarfríinu var haldinn fjölskyldudagur í Gufunesi á vegum frístundarmiðstöðvarinnar Gufunesbær. Foreldrum var boðið ásamt börnum að mæta á svæðið og taka þátt í dagskránni.
Vikan 8. - 12. nóvember | 08.11.2010
Önnur vika hafin í nóvember og það er allt að gerast. Klúbbakvöld, hópefliskvöld og loks náttfatanótt. Ef þú smellir á fréttina kemstu að öllu sem þú þarft að vita.
SREKKUR Á MORGUN | 08.11.2010
Stundin nálgast. Hárin rísa... Borgaskóli er að fara að keppa í SKREKK á morgun! Síðustu miðarnir verða seldir á morgun í hádeginu. Rútan leggur af stað klukkan 19:00 frá Borgaskóla....
Vikan 8. - 12. nóv (SKREKKSVIKAN) | 08.11.2010
Það er vægast sagt hellingur að gerast í félagsmiðstöðinni þessa vikuna. Skrekkur á þriðjudaginn, Gullspaðinn á fimmtudaginn og Kokkakeppnin á föstudaginn. Lesið meira um það hérna!
Halloween bragðarefakvöld | 05.11.2010
Í kvöld föstudaginn 5.nóvember ætlum við að halda Halloween bragðarefakvöld í Fjörgyn. Húsið opnar klukkan 19:30 og geta allir komið og verslað sér bragðaref að eigin vali. Spilin verða tekin upp og skorar Jónína á alla í Jungle speed.