Útivistarsvæðið við Gufunesbæ

Á túnum við gamla Gufunesbæinn iðar menningin allan ársins hring.  Mikil uppbygging hefur átt sér stað að undanförnu og erum við stolt af okkar laglegu afþreyingarmiðstöð þar sem boðið er upp á fjölbreytta útivistarstarfsemi. 
 
Uppbyggingin mun halda áfram á næstu árum og vonum við að Grafarvogsbúar nýti sér aðstöðu okkar.  Fjölmargir hópar frá félagsmiðstöðvum, frístundaheimilum, skólum, fyrirtækjum og félagasamtökumhafa komið og nýtt sér aðstöðuna. Einnig koma í auknu mæli einstaklingar og fjölskyldur á svæðið enda notalegt að koma úr iði stórborgarinnar í sveitasælu og ró.
 
Það sem við bjóðum upp á er: Veggjaklifur, strandablaksvöllur, frisbígolf, hjólabrettaaðstöðu, útieldunar- og grillaðstöðu og fallegt umhverfi. Þá er hægt er að leigja út fjölnota sal í ný uppgerðri hlöðu.

 

Nánari upplýsingar um aðstöðuna og myndir má sjá með því að smella á flippanna hér vinstra megin á síðunni. Einnig er hægt að hringja í Gufunesbæ í síma 411 5600 og fá upplýsingar um hlöðuna hjá Erlu (erla.k.olafsdottir@reykjavik.is) og um útivistarsvæðið hjá Sigurgeir (sigurgeir.birgisson@reykjavik.is).

 







Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit