Frístundaheimili Gufunesbæjar

Haustið 2003 tóku til starfa  átta frístundaheimili í Grafarvogi sem eru rekin af ÍTR. Frístundaheimilin leysa heilsdagsskólana af hólmi með fjöbreyttu og skemmtilegu starfi í allan vetur. Frístundaheimilin hafa það að markmiði að skapa þægilegt og heimilislegt andrúmsloft í samvinnu við börnin.

Börnunum er boðið upp á skipulagt frístundastarf, frjálsan leik og rólegheit eftir þeirra eigin vali. Enda er litið svo á að sá tími sem börnin dvelja hjá okkur sé þeirra frítími og því eðlilegt að þau hafi eitthvert val um hvernig honum skuli háttað. Frístundaheimili ÍTR leggja mikla áherslu á barnalýðræði auk jákvæðni og fjölbreytileika. Einnig er lögð rík áhersla á gott samstarf og upplýsingastreymi milli foreldra, frístundaheimilis og skóla.

Börn með sérþarfir fá stuðning sem er skipulagður í hverju frístundaheimili fyrir sig í samvinnu við foreldra og skóla.


Frístundaheimili


Skóla og frístundasvið




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit