112an hefur störf við Gufunesbæ
Þann 7.júní síðastliðinn hófst atvinnuátaksverkefni á vegum Gufunesbæjar og fékk það nafnið 112an (hundrað og tólfan).
Hún samanstendur af 12 einstaklingum á aldrinum 17-19 ára sem hafa flest öll einhverja þekkingu og vitund hvað varðar að skipuleggja viðburði eða hafa fjölbreytta reynslu af félagsmálum. Í þessum hóp eru Guðfinna Birta, Ástrós, Bergsveinn, Einar Leó, Bjarki Steinn, Kara Björk, Lóa Björk, Sandra Dröfn, Anna Alexandra, Úlfar Viktor, Egill og Kolbeinn Ari.
Markmið hópsins er að halda viðburði fyrir alla aldurshópa og erum við búin að skipuleggja allt frá leikjadegi fyrir leikskólahópa og yfir í rífandi kaffihúsastemningu og félagsvist með eldri borgurum. Að sjálfsögðu höldum við líka atburði fyrir jafnaldra okkar og má þar nefna HM kvöld, spilakvöld, íþróttadag og skemmtikvöld með uppistöndurum og vel völdnum tónlistarmönnum.
112an verður starfandi í 6 vikur, þ.e. frá 7 júní til 16 júlí. Umsjónarmenn hópsins eru Magnús S. Guðmundsson og Gunnar E. Sigurbjörnsson.