Á miðvikudaginn var svo hjóladagur þar sem allir með tölu komu á hjólunum sínum. Við hjóluðum í gegnum Grundarhverfið og alveg upp að Brautarholtskirkju þar sem við settumst aðeins niður og hvíldum lúin bein í lautinni sem liggur fyrir neðan kirkjuna.
Fimmtudagurinn gekk í garð með rigningu og skýjuðum himni en það létum við ekki á okkur fá heldur hoppuðum við upp í strætó og héldum leið okkar niður í Nauthólsvík þar sem við fórum á bátinn hann Jónas feita og fengum að heyra ýmsar furðlegar skipstjórasögur frá skipstjóranum sí káta. Nokkrir sprækir stukku í sjóinn í öllum fötunum og syntu síðasta spölinn í land. Það var ansi kalt en við fengum að hlýja okkur eftir það í heita pottinum í Nauthólsvíkinni þar sem við grilluðum líka pulsur og átum með gleði í hjarta.
Föstudagurinn var ekki síðri en fimmtudagurinn. Við héldum okkar eigin Ólympíuleika þar sem við tókum þátt í snú-snú keppni, kúluvarpi, sparka skóm rólandi, twiser og í stanga jafnvægi. Drengur einn að nafni Sigfús átti líka afmæli þennan dag svo við héldum daginn hátíðlegan og borðuðum hamborgara og borðuðum ís.
Takk fyrir góða viku allir saman og sjáumst hress á mánudaginn næsta! :)