Strumpaleikar
Markmið Strumpaleikanna er fyrst og fremst að hafa gaman af. Það er enginn skylda að taka þátt en við reynum að fá sem flesta. Auk þess fá börnin tækifæri til að koma og skoða önnur frístundaheimili og annað hverfi innan Grafarvogs. Við göngum yfirleitt þangað sem Strumpaleikarnir eru haldnir og heim aftur, en erum með strætómiða á okkur til vonar og vara.
Þegar Strumpaleikar eru haldnir fá börnin (ef þau vilja) stuttermabol (lánaðan) merktan Vík og einnig eru þau stundum máluð með andlitsmálningu.
Það eru veitt fjögur verðlaun á hverjum leikum. Verðlaunin eru í formi viðurkenningarskjala sem eru veitt í lok leikanna hverju sinni. Veittar eru viðurkenningar fyrir: fjölmennasta liðið, prúðasta liðið, jákvæðasta liðið og besta klappliðið.
Stefnt er á að hvert frístundaheimili haldi eina strumpaleika á hvorri önn. Leikarnir eru einu sinni í mánuði.
Við förum í heimsókn í þrjú önnur frístundaheimili og það eru: Brosbær í Engjaskóla, Ævintýralnd í Korpuskóla og Hvergiland í Borgarskóla.