Rafræn Gufunesbær .
 
9.3.2010

Dótadagur og klúbbarnir okkar

Í síðustu viku vorum við með rosalega skemmtilega klúbba, börnin voru að útbúa gifsgrímur, fóru í leyniherbergið út í skóla, spiluðu þythokkí og margt annað skemmtilegt. Það eru komnar inn myndir hérna til hliðar úr klúbbastarfinu.
 
Börnin skemmtu sér svo alveg konunglega á dótadeginum sem var á síðasta föstudag. Þau voru að koma með ýmisskonar dót að heiman og finnst svo gaman að sýna öllum hvað þau voru að koma með. Næsti fríkaði föstudagur er 19.mars og þá er náttfatapartý
 
Skráningarblað fyrir páskaleyfið verður sent heim með börnunum, sett inn á heimasíðuna okkar og sent á foreldra í tölvupósti fimmtudaginn 11. mars nk. Síðasti skiladagur á skráningarblaðinu er 17. mars nk.
25.2.2010

Íþróttadagur og klúbbarnir okkar

Föstudaginn 19.febrúar vorum við með Fríkaða föstudaga og þá var íþróttadagur. Við fórum með flestöll börnin upp í Rimaskóla og fórum í brjálaða leiki og skemmtilegheit. Næsti fríkaði föstudagur er 5. mars og þá verður aftur dótadagur.
 
Klúbbarnir okkar voru í gær og við vorum með nýjan klúbb sem heitir ,,Spæjóklúbburinn" Flest börnin vildu fara í þennan klúbb en hann snérist um að fara út að leika sér og finna vísbendingar að fjársjóði. Í næsta spæjóklúbbi verður væntanlega ratleikur. Við vorum líka með föndurklúbb, spilaklúbb, tölvuklúbb og svo þythokkí/fótboltaspil fyrir elstu börnin.
 
Erum loksins búin að fá nýja myndavél þannig að vonandi náum við að setja inn nýjar myndir sem fyrst. Við látum ykkur vita með tölvupósti þegar þær eru komnar.
  Í dag er 10. mars 2010
<mars 2010>
mþmffls
22232425262728
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930311234
Mánaðaryfirlit Vikuyfirlit
Flokkayfirlit Leit
Á DÖFINNI
Engir viðburðir eru skráðir á næstunni