Sumarið 2010
Langir dagar hafa verið í SImbað undanfarið og höfum við gert margt skemmtilegt. Við bökuðum bananabrauð og borðuðum það í kaffinu, kíktum í fjöruna og farið á bókasafnið. Í dag ætlum við að kíkja í Gufunesbæ og grilla okkur pylsur og leika okkur á fallega svæðinu í kringum Gufunes og á morgun, fimmtudag, er dóta- og spiladagur. Einnig ætlum við að taka til í Simbað fyrir sumarið.
Sumarfrístund verður starfrækt í Regnbogalandi, Foldaskóla í sumar og þar verða Eiríkur og Erla úr Simbað. Við ætlum að gera ýmislegt saman í sumar eins og fara í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn, Siglunes, Sveitaferð, Grilla og nýta útiaðstöðuna í kring um okkur. Við ætlum einnig að reyna að gera aðeins meira fyrir börn í 3. og 4. bekk. Slóðin er: www.gufunesbær.is/regnbogaland