11 Gufunesbær Hamraskóli
 
27.8.2010

Fyrsta vikan í Simbað

Fyrsta vika Simbaðs er að verða búin og gekk vonum framar. Krakkarnir í 1.bekk fengu sín fyrstu kynni af frístundarheimilinu og virðast öll kát og glöð enda glæsilegur hópur þar á ferð. 2 , 3 og 4.bekkur er líka að sjálfsögðu komin að hluta og eru þar flottir krakkar. Hlutirnir hafa farið hægt og rólega af stað og börnin hafa verið að kynnast hvort öðru sem og starfsfólkinu. Þessa fyrstu daga njótum við veðursins, klifra í trjám, moka, skoða flugurnar og kóngulærnar og njóta þess svæðis sem við höfum. Einnig erum við að prufa dótið sem er inni. Dagskráin verður kominn á fullt skrið í þarnæstu viku og mun hún birtast hér á síðunni.

[ MEIRA ]
9.6.2010

Sumarið 2010

Langir dagar hafa verið í SImbað undanfarið og höfum við gert margt skemmtilegt. Við bökuðum bananabrauð og borðuðum það í kaffinu, kíktum í fjöruna og farið á bókasafnið. Í dag ætlum við að kíkja í Gufunesbæ og grilla okkur pylsur og leika okkur á fallega svæðinu í kringum Gufunes og á morgun, fimmtudag, er dóta- og spiladagur. Einnig ætlum við að taka til í Simbað fyrir sumarið.
 
Sumarfrístund verður starfrækt í Regnbogalandi, Foldaskóla í sumar og þar verða Eiríkur og Erla úr Simbað. Við ætlum að gera ýmislegt saman í sumar eins og fara í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn, Siglunes, Sveitaferð, Grilla og nýta útiaðstöðuna í kring um okkur. Við ætlum einnig að reyna að gera aðeins meira fyrir börn í 3. og 4. bekk. Slóðin er: www.gufunesbær.is/regnbogaland
  Í dag er 10. september 2010
<september 2010>
mþmffls
303112345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930123
45678910
Mánaðaryfirlit Vikuyfirlit
Flokkayfirlit Leit
Á DÖFINNI
Engir viðburðir eru skráðir á næstunni