Sumardagksrá 8. - 16. júní
Sumaropnanir í félagsmiðstöðvum
Gufunesbæjar
Unglingar, sem nú í vor ljúka 8., 9. eða 10. bekk, geta í sumar tekið þátt í skemmtilegu félagsmiðstöðvastarfi. Umsjón með félagsmiðstöðvaopnunum í sumar hefur þaulvant starfsfólk sem einnig starfar í félagsmiðstöðvunum yfir vetrartímann. Allar sömu reglur og viðmið gilda í sumarstarfi félagsmiðstöðva eins og í vetrarstarfinu.
Sumaropnanir félagsmiðstöðvanna verða á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum og hefjast 8. júní og þeim lýkur 8. júlí en þá fara félagsmiðstöðvarnar í sumarfrí þar til skólastarf hefst í haust. Dagskrá fyrstu opnanna í sumar er eftirfarandi:
Fyrir unglinga í Hamra-, Folda-, Húsa- og Rimaskóla:
Þriðjudagurinn 8. júní í Sigyn Rimaskóla
Kl. 13.30-17.00 - Grill og kynning á sumarstarfinu/opið hús
Miðvikudagurinn 9. júní í Sigyn í Rimaskóla
Kl. 18.30-21.30 – Street-ball körfubolta mót
Fimmtudagurinn 10. júní í Sigyn í Rimaskóla
Kl. 13.30-17.00 – Bandí-mót (3 í liði) og HM á skjá
------
Þriðjudagurinn 15. júní í Sigyn í Rimaskóla
Kl. 13.30-17.00 – Hjóla- og veiðiferð, Reynisvatn
Miðvikudagurinn 16. júní í Græðgyn í Hamraskóla
Kl. 19.00-21.30 - HM-mót félagsmiðstöðva í tuðrusparki (4 í liði)
Fimmtudagurinn 17. júní
LOKAÐ
Miðvikudaginn 23. júní verður haldin sumarhátíð í samstarfi félagsmiðstöðva Gufunesbæjar, Miðbergs og Ársels á Gufunesbæjarsvæðinu og þar verður hægt að hafa margt skemmtilegt fyrir stafni. Nánar auglýst síðar.
Foreldrar og unglingar eru hvattir til að fylgjast með dagskrá og staðsetningu sumaropnana á heimasíðu Sigynjar (www.gufunes.is/sigyn) eða Gufunesbæjar www.gufunes.isog í gegnum Facebook.
Nánari upplýsingar veita einnig:
Ragnar Harðarson, verkefnisstjóri s. 695-5183
Njörður Njarðarson, verkefnisstjóri s. 695-5186