Fótboltamót og Skartgripagerð
Rétt í þessu var að enda Skartgripagerð og Fótboltamót hjá Minni-Borgyn og gekk það glimrandi vel.
í fótboltamótinu var hart barist, skot í slá, klobbar og eitraðar stungusendingar voru í hávegum hafðar. Strákarnir voru í þremur liðum og spiluðu ágætlega saman. Mikið barist og mikið fjör, dómarinn átti í mestu makindum með að telja mörkin sem komu allstaðar frá.
í skartgripagerðinni voru stelpurnar að búa til hálsmen, nælur og ýmislegt og sýndu þær skemmtilega listræna hæfileika í nákvæmnis vinnu sinni.
Mjög skemmtilegur dagur í Minni-Borgyn og vonum við að sjá enn fleiri á næstu opnum
með bestu kveðju starfsfólk Borgyn.