Rafræn Myndir
 
 

Ströndin

Við erum búin að vera mjög dugleg í Strandarvikunni.

Á þriðjudaginn var, þann 29. júní fórum við í Laugardalslaug og í Laugardalinn á eftir.  Það er skemmtilegt að skoða Þvottalaugarnar og leika sér í leiktækjunum þar. 
Í dag þann 30. júní vorum við allan daginn í Nauthólsvík og var margt brallað þar.  Við bjuggum til flotta sandkastala, fórum í fjársjóðsleit og margt fleira.  Allir komu heim sælir og rjóðir og þreyttir.  En það er eðlilegt eftir svona skemmtilegan dag.