10.2.2010
Dagskrá og viðburðir
Búið er að setja nýju dagskránna hér inn á síðuna ásamt því að uppfæra viðburðadagatalið hér neðarlega á síðunni út mars. Endilega fylgist með. Einnig er búið að setja inn nokkur myndaalbúm! :D
10.2.2010
9. bekkjarferð

Um helgina fóru 30 hressir unglingar úr 9. bekk í Húsaskóla í ferð með Nagyn yfir nótt upp á Akranes. Stemmningin var engu lík og hressleikinn var rosalegur. Lagt var af stað um kl. 18 á föstudeginum og komið á Akranes tæplega klukkutíma seinna. Við fengum inni í félagsmiðstöðinni þar sem heitir Arnardalur. Eftir kvöldmat þá var félagsmiðstöðin opnuð fyrir heimakrökkum og var opið hús þar sem mikil stemmning var í gangi. Þegar heimafólkið yfirgaf svæðið þá var komið sér fyrir og haldin smá kvöldvaka sem teygðist aðeins á langinn :D. Vaknað var um 10 morguninn eftir og þá var gengið frá og svo skellt sér í sund áður en farið var aftur heim í borgina. Takk fyrir góða ferð og endilega kíkið á myndirnar hér á síðunni.
4.2.2010
Klúbbakvöld í kvöld
Í kvöld verður ekki opið hús heldur klúbbakvöld. 10. bekkjar strákaklúbbur ætlar að hittast, fá sér smá í gogginn og skipuleggja framhaldið hjá sér. Stelpuklúbbur 9. bekkjar ætla að hafa agalega kósístemmningu í ljósi afmælis Nagynjar og fréttir herma að frönsk súkkulaðikaka með ís verði á boðstólum. Sjáumst hress á eftir. Kveðja - Nagynstaffið :D