Gufunesbær Fjölskyldu Reykjavikurborg Kjalarnes.is Rafræn Leikskólinn Klébergsskóli Sumarfrístund
 
 

Dýrin eru yndisleg

Nú er vel heppnuð dýravika senn á enda og ný helgi að ganga í garð. Fyrir hádegi á miðvikudaginn eyddum við í fjörunni þar sem við lékum í sjónum og skoðuðum ýmis furðudýr að öllum stærðum og gerðum. Eftir það stukkum við svo í sund hérna á Kjalarnesinu og nutum okkar í sólinni sem iljaði okkur þar sem eftir var að deginum. Allir krakkarnir á smíðavöllunum komu með okkur í sund. 

Fimmtudagurinn kom með enn meiri sól og þar var ferðinni heitið upp í Miðdal í Kjós að heimsækja dýrin í sveitinni. Þrír sveitahundar tóku á móti okkur með brosi á vör og við fengum að gefa hænunum brauð. Þegar líða tók á daginn grilluðum við okkur pylsur, fórum í vel heppnaðan ratleik sem einkenndist af skemmtilegum spurningum um dýrin og nokkir sprækir hlupu upp á fjall sem liggur fyrir ofan sveitina. Fimmtudagurinn flaug áfram og endaði vel.

Föstudagurinn einkenndist af dundri og leikjum. Við erum búin að búa til brjóstsykur sem var líklega bragðbesti brjóstsykur sem sögur hafa farið af hér í Kátakoti og svo fengum við að láta andlitsmála okkur í allskonar litum!

 

Myndirnar frá vikunni eru komnar inn á myndasíðuna okkar.

Takk fyrir vikuna og góða helgi :)

SKOÐUNARKÖNNUN

VIÐBURÐADAGATAL

Myndir