9.3.2010
opið í kvöld
í kvöld þriðjudaginn 9.mars verður opið hjá okkur í græðgyn en við ætlum að vera með spólu í tækinu, kjuða á borðinu, spaða í vasanum, tóna í eyrunum og límband á gólfinu. húsið opnar kl.19.30 og ef þú ætlar að tækla eitthvað af þessu þá mælum við með því að þú tæklir smá heimsókn í Græðgyn í kvöld
friður út
9.3.2010
Ball hjá 5 og 6.bekk
í dag kl.17.00 til 18.30 verður diskó hjá okkur fyrir 5. og 6.bekk. það kostar ekkert á ballið en við ætlum að vera með smá diskó ásamt því að farið verður í leiki en sjoppan verður líka opin. vonandi koma sem flestir
Grægðyn
4.3.2010
opið í kvöld
"bíddu er opið í græðgyn í kvöld" sagði máni við sunnu. "já sagði sunna með stuttu hléi eða eins og hún væri að pæli í einhverju allt öðru". máni var eins og gefur að skilja ekki ánægður með þetta slaka svar en vildi samt ekki vera leiðinlegur og svarði því um hæl með því að segja "það er líka opið á olís og hjá þeim er opið til 23.30 en ekki til 22.00 eins og í græðgyn". sunna var en að pæla í þessu en heyrði samt alveg hvað máni sagði og svaraði um leið " já en máni olís er bara olís græðgyn er svo miklu miklu meira og veistu ég heyrði að það kæmi eitthvað nýtt í sjoppuna hjá þeim í kvöld og svo náði raggi líka næstum því að vinna björn síðasta þriðjudag og ég ætla nú að vera á svæðinu ef ragga tekst að vinna hann í kvöld". máni var fljótur að svara og taka undir allt þetta hjá henni sunnu en sagði líka " sunna þú veist alveg að þetta með olís var bara djók er það ekki?".
ef þú gafst upp eftir fyrstu línuna þá bara til að hafa það alveg á hreinu þá er OPIÐ hjá okkur í GRÆÐGYN í kvöld frá kl.19.30-22.00. það er alveg ljóst að það verður leikur í borðtennis og einhver ætlar að taka smá session í guitar hero en hitt er allt ó ritað blað en eina spurningin er ætlar þú að eiga þátt í að rita orðin í auða blaðið...
friður út og sjáumst í kvöld