Tómstundanámskeið
Nokkur námskeið hafa verið í gangi í vetur.
Ljósmyndanámskeiðið er lokið og heppnaðist það frábærlega, ágæt þátttaka og krakkarnir voru mjög ánægð með það. Vonandi getum við haldið annað námskeið næsta haust.
Fatahönnunarnámskeið er ekki enn lokið, stelpurnar sem tóku þátt í því eiga eftir að hittast einu sinni til að klára það sem þau voru að hanna og sauma. Stelpurnar verða látnar vita af því.
Núna er teikninámskeið á fimmtudögum kl. 18:00-20:00. Síðasti tími féll niður en tíminn færist aftur fyrir þannig að námskeiðið verður til 20.maí.