Sumaropnanir 2010
Kæru vinir, þá hefur Fjörgyn verið lokað þannan vetur og viljum við starfsfólk Fjörgynjar þakka ykkur fyrir frábærann vetur. Við munum bjóða upp á sumaropnanir eins og hér segir:
Unglingar, sem nú í vor ljúka 8., 9. eða 10. bekk, geta í sumar tekið þátt í skemmtilegu félagsmiðstöðvastarfi. Umsjón með félagsmiðstöðvaopnunum í sumar hefur þaulvant starfsfólk sem einnig starfar í félagsmiðstöðvunum yfir vetrartímann. Allar sömu reglur og viðmið gilda í sumarstarfi félagsmiðstöðva eins og í vetrarstarfinu.
Sumaropnanir félagsmiðstöðvanna verða á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum og hefjast 8. júní og þeim lýkur 8. júlí en þá fara félagsmiðstöðvarnar í sumarfrí þar til skólastarf hefst í haust. Dagskrá fyrstu opnanna í sumar er eftirfarandi:
Fyrir unglinga í Hamra-, Folda-, Húsa- og Rimaskóla:
Þriðjudagurinn 8. júní í Sigyn Rimaskóla
Kl. 13.30-17.00 - Grill og kynning á sumarstarfinu/opið hús
Miðvikudagurinn 9. júní í Sigyn í Rimaskóla
Kl. 18.30-21.30 – Street-ball körfubolta mót
Fimmtudagurinn 10. júní í Sigyn í Rimaskóla
Kl. 13.30-17.00 – Bandí-mót (3 í liði) og HM á skjá
------
Þriðjudagurinn 15. júní í Sigyn í Rimaskóla
Kl. 13.30-17.00 – Hjóla- og veiðiferð, Reynisvatn
Miðvikudagurinn 16. júní í Græðgyn í Hamraskóla
Kl. 19.00-21.30 - HM-mót félagsmiðstöðva í tuðrusparki (4 í liði)
Fimmtudagurinn 17. júní
LOKAÐ