Strumpaleikarnir
Strumpaleikar er íþróttaleikar þar sem frístundaheimilin keppa í óhefðbundnum íþróttagreinum sín á milli. Frístundaheimilin í norðurhluta Grafarvogs þ.m.t Brosbær halda sína eigin leika eins og frístundaheimilin í suðurhluta Grafarvogs.
Markmið strumpaleikanna er fyrst og fremst

að hafa gaman af. Það er enginn skylda að taka þátt en við reynum að fá sem flesta. Auk þess fá börnin tækifæri til að koma og skoða önnur frístundaheimili og annað hverfi innan Grafarvogs. Við göngum yfirleitt þangað sem strumpaleikarnir eru haldnir og heim aftur, en erum með strætómiða á okkur til vonar og vara.
Það eru veitt fjögur verðlaun á hverjum leikum. Verðlaunin eru í formi viðurkenningarskjala sem eru veitt í lok leikanna hverju sinni.
Veittar eru viðurkenningar fyrir " fjölmennasta liðið", "prúðasta liðið", "jákvæðasta liðið" og "besta klappliðið"
Stefnt er á að hvert frístundaheimili haldi eina strumpaleika á hvorri önn. Leikarnir eru einu sinni í mánuði.