Gufunesbær Sumarstarf
 
16.7.2010

Óvissuvikan ...

Óvissuvikan hefur heldur betur gengið vel hjá okkur í sumarlandi. Við erum búin að fara i Lazer tag og keilu, í gær var svo sólað sig í kópavogslauginni þar sem við fengum dýrindisveður og eftir sund fengu börnin svo ís. Allir sáttir og glaðir með vikuna, ætlum svo að enda hana í dag í Gufunesbæ að leika okkur í góða veðrinu og fá grillaðar pulsur. Þökkum fyrir vikuna sem er að líða og hafið það gott í sumarfríinu. Sjáumst vonandi flest þegar við snúum aftur 9. ágúst!
 
 
 
Bestu kveðjur, starfsfólk Sumarlands :)
7.7.2010

Vísindavika

Sæl öllsömul, vísindavikan hefur farið fjörlega af stað hjá okkur í Sumarlandi. Á mánudeginum vorum við heima fyrir og gerðum margt skemmtilegt saman, það sem stóð upp úr var smökkun á ýmsum matvörum. Á þriðjudaginn fórum við í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, byrjuðum á að fara í húsdýragarðinn og skelltum okkur í vísindatjaldið þar sem ungir snillingar spreyttu sig á hinum ýmsu þrautum. Eftir dágóða stund í tjaldinu var farið í fjölskyldugarðinn og fengu krakkarnir að leika sér þar í dágóðann tíma og skemmtu sér rosalega vel. Bílarnir stóðu upp úr hjá krökkunum, framtíðar ökumenn í Sumarlandi :)
Í dag miðvikudag fórum við í Tilraunalandið sem stendur við Norræna húsið. Þar voru einnig mjög skemmtilegar þrautir sem krökkunum fannst rosalega gaman að skoða, eftir heimsóknina í tilraunaland var farið í hljómskálagarðinn og fengu krakkarnir að vera í frjálsum leik þar sem klifurgrindin vakti mikla lukku meðal barnanna. Þau börn sem voru í 3 og 4 bekk í vetur fengu að fara á Café hljómskálinn í smá kræsingar.
Fimmtudag verður svo farið í óvissuferð og þar lofum við mikilli skemmtun :) Endum svo vikuna á því að skella okkur í sund og fara svo í Gufunesbæ.
 
Myndir frá vikunni eru komnar inn og má finna þær hér: http://www.gufunes.is/Brosbaer/album.aspx?catID=5458&albumID=9648
 
Kveðja Starfsfólk í Sumarlandi.
2.7.2010

Pizzagerð og ,,gubburóló"

Í dag fórum við á ,,gubburóló" sem er róluvöllur í Rimahverfinu sem kallaður er gubburóló af því að krökkunum verður oft flökurt þegar þá eru búin að vera lengi í einni sérstakri rólu. Á sama tíma fóru eldri börnin í fjallgöngu.
Þegar allir voru búnir að jafna sig eftir ,gubburóló" fóru börnin í Dominos og gerðu sínar eigin pizzur í Dominos Spönginni.
Takk fyrir vikuna og munið eftir að skoða myndirnar sem komnar eru inn á síðuna. 
  Í dag er 29. júlí 2010
<júlí 2010>
mþmffls
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Mánaðaryfirlit Vikuyfirlit
Flokkayfirlit Leit
Á DÖFINNI
Engir viðburðir eru skráðir á næstunni